Eftir stutt stopp fer getraunaleikurinn af stað aftur um helgina og verður fyrsta umferðin laugardaginn 4.febrúar.
Nú er um að gera að taka þátt í skemmtilegum leik. Vinningar veittir fyrir 3 efstu sætin í riðlinum.
Reglur Getraunaleiks KF:
1. Grein: Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi KF.
2. Grein: Lið skilar inn 2 seðlum. Betra skor liðs í hverri umferð gildir.
3. Grein: Hægt er að skila seðlum á tölvupóstinn kf@kfbolti.is , í síma 466 2728 eða mæta á staðinn. Hver seðill skal innihalda 6 tvítryggingar og 7 leiki með einu merki.
4. Grein: Raðirnar þurfa að vera komnar til KF-getrauna fyrir kl.13 á laugardögum.
5. Grein: Liðum er skipt niður í riðla ef næg þátttaka næst, lágmark 18 lið til að skipt sé í riðla.
Séu lið skráð til keppni 17 eða færri þá er spilað í 8 vikur á þeim tímapunkti fá tvö efstu liðin 1 bónusstig. Síðan eru leiknar 3 umferðir í viðbót þar sem úrslit munu ráðast.
Sé fjöldi liða 18 eða fleiri er riðlakeppni í 8 vikur. Eftir riðlakeppnina verður liðum skipt í aðra tvo riðla, Meistaradeild og Afturrúðubikar, þar eru leiknar 3 umferðir og þar munu úrslitin ráðast. Raðað er í Meistaradeild og Afturrúðubikar eftir fjölda stiga sem lið ná að safna sér eftir riðlakeppnina. Liðin 2 sem koma inn með flest stig eftir riðlakeppnina fá 1 bónusstig.
7. Grein: Gleymi hópur að senda inn raðir eina vikuna þá gildir lægsta skor þeirra raða sem sendar voru inn í þeirri umferð.
8. Grein: Þegar spilað er í úrslitum eða lið eru jöfn í riðlakeppni þá kemst það lið áfram sem hefur fleiri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar þeir leikir eru skoðaðir þá er varpað hlutkesti.
9.grein: Breyting frá síðasta getraunaleik, ekki er skylda fyrir lið að setja röð í gengum 1x2 getraunakerfið. Þó að það sé vel þegið:-).
Liðaskráningar á kf@kfbolti.is eða í síma 865 2325 (Heiðar) eða 660 4760 (Þorri).
Þátttökugjald er 5.000 kr. á hvert lið.
Skrifstofan verður opin milli kl.12-14 á laugardögum.
Getraunaleikurinn hefst aftur laugardaginn 4.feb
31/01/2012 - 08:27









