Nýr Getraunleikur.

-NÝR LEIKUR AÐ HEFJAST!

Fyrsta umferð verður spiluð föstudagskvöldið 23 Oktober

Getraunaþjónustan er opin á föstudagskvöldum milli kl.20-22 og fyrir lokun þurfa öll lið að vera búin að skila inn sínum seðlum.  Spilaðar verða 8 umferðir.

Reglur Getraunaleiks KF:

1. Grein: Getraunaleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi KF.

2. Grein: Keppt verður í liðakeppni betra skor liðsins gildir í hverri umferð.  Verðlaun veitt fyrir 2 efstu sætin.

3. Grein: Það verður einstaklingskeppni og þar er hægt að nota sama seðil og notaður er í liðakeppninni. Sá sem hefur flesta rétta að loknum 8 umferðum stendur uppi sem sigurvegari. Verðlaun veitt fyrir fyrstu 2 sætin.

4. Grein: Ef lið eru jöfn að stigum eftir lokaumferð í deild þá hefur það lið vinninginn sem hefur fleiri útisigra alls í viðkomandi deild. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þarf að varpa hlutkesti. Sama fyrirkomulag gildir sé jafnt í lok einstaklingskeppni.

5. Grein: Hægt er að skila röðum á tölvupóstinn kf@kfbolti.is , í síma 466 2728 eða mæta í KF-heimilið á opnunartíma getraunaleiksins. Hver seðill í deildarkeppnum skal innihalda 1 þrítryggingu og 5 tvítryggingar og 7 leiki með einu merki. Leyfilegt er að stækka raðirnar með því skilyrði að sú röð fari inn í kerfið. Félagið hvetur að sjálfsögðu til þess að raðirnar séu skráðar inní getraunakerfið, bæði til að styrka félagið og um leið og gefa sjálfum sér möguleika á þeim stóra, menn hafa jú farið flatt á því að setja ekki inní kerfið!

6. Grein: Hafi lið/einstaklingur ekki skilað inn röðum fyrir kl.23 á föstudagskvöldi gildir lægsta skor þeirra raða sem sendar voru inn í þeirri umferð.

Þátttökugjald er 3.000 kr. per einstakling.

Liðaskráningar og frekari upplýsingar á kf@kfbolti.is, á Kf spjallþræðinum á facebook eða hjá Gulla í síma 8420906 eða Þorra í síma 6604760

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s