Reglur getraunaleiks

Getraunaþjónustan er opin á föstudagskvöldum milli kl.20-22 og fyrir lokun þurfa öll lið að vera búin
að skila inn sínum seðlum. Spilaðar verða 12 umferðir.
Reglur Getraunaleiks KF:

1. Grein: Getraunaleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi KF.
 
2. Grein: Keppt verður í liðakeppni betra skor liðsins gildir í hverri umferð. Í fyrstu 8 umferðunum er leikið í undanriðlum en eftir umferðirnar 8 ræðst hvaða lið munu leika í Meistaradeild og Utandeild síðustu 4 umferðirnar. Þau lið sem bera sigur úr bítum í hverjum undanriðli taka með sér 1 stig í Meistaradeild. Verðlaun veitt fyrir 2 efstu sætin í Meistaradeild og Utandeild.
 
3. Grein: Það verður einstaklingskeppni og þar er hægt að nota sama seðil og notaður er í liðakeppninni. Sá sem hefur flesta rétta að loknum 12 umferðum stendur uppi sem sigurvegari. Verðlaun veitt fyrir fyrstu 2 sætin.
 
4. Grein: Ef lið eru jöfn að stigum eftir lokaumferð í deild þá hefur það lið vinninginn sem hefur fleiri útisigra alls í viðkomandi deild. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þarf að varpa hlutkesti. Sama fyrirkomulag gildir sé jafnt í lok einstaklingskeppni.
 
5. Grein: Hægt er að skila röðum á tölvupóstinn kf@kfbolti.is eða mæta í KF-heimilið á opnunartíma getraunaleiksins. Allir seðlar eiga að vera OPNIR SEÐLAR, Hver seðill í deildarkeppnum skal innihalda 1 þrítryggingu og 5 tvítryggingar og 7 leiki með einu merki. Leyfilegt er að stækka raðirnar með því skilyrði að sú röð fari inn í kerfið. Félagið hvetur að sjálfsögðu til þess að raðirnar séu skráðar inní getraunakerfið, bæði til að styrka félagið og um leið og gefa sjálfum sér möguleika á þeim stóra, menn hafa jú farið flatt á því að setja ekki inní kerfið!
 
6. Grein: Hafi lið/einstaklingur ekki skilað inn skori fyrir kl.22:00 á föstudagskvöldi gildir lægsta skor þeirra raða sem sendar voru inn í þeirri umferð. Þátttökugjald er 3.000 kr. per einstakling. Liðaskráningar og frekari upplýsingar á kf@kfbolti.is, á Kf spjallþræðinum á facebook eða hjá Hákoni í síma 8570466.
 
 
 
 
 
 
Enter
 
 

👍

2Enter

22. jan 2021, 14:48