Leikreglur

Leiktími: 2 x 8 mínútur (2 mínútur í hálfleik og 5 mínútur milli leikja). Allir leikir byrja og enda á sama tíma og liðin ganga saman inn á völlinn með dómara.

Upphafsspyrna: Skal tekin á miðju og er heimilt að spyrna í hvaða átt sem er. Ekki er heimilt að skora mark úr upphafsspyrnu.

Hornspyrna: Er tekin þar sem hliðarlína og marklína skerast.

Markmaður: Má taka með höndum eftir sendingu frá samherja.

Markspyrna: Ekki er heimilt að skora mark úr markspyrnu.

7.-8. flokkurEngar vítaspyrnur dæmdar, aukaspyrna í staðinn á vítateigslinu.

Dómarar: Eru leiðbeinendur og leiðbeina krökkunum á meðan á leik stendur.