KEA afhendir KF styrk úr Menningar og viðurkenningarsjóð

KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins þann 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Var þetta í 90. skipti sem veitt er úr sjóðnum. Úthlutað var tæplega 24,7 milljónum króna til 60 aðila.

Jón Árni Sigurðsson tók við styrknum fyrir hönd KF. Styrkurinn sem KF fékk hljóðar upp á 300.000 kr. til reksturs félagsins.

Styrkurinn er okkur afar mikilvægur og þökkum við KEA kærlega fyrir okkur.

ÁFRAM KF OG KEA💙

Færðu inn athugasemd