KF – KH Upphitun

Næsta verkefni hjá KF er á Laugardaginn 1. september kl 13:00, En þá mætir KH í heimsókn á Ólafsfjarðarvöll. Þetta er fyrsta skipti sem KH mætir á Ólafsfjarðarvöll enda liðin að spila í fyrsta skipti saman í deild. KH er svokallað venslalið hjá Val og eru þeir að spila í fyrsta skipti í 3. deildinni í ár.  Fyrri leikur liðanna fór fram á Hlíðarenda þar sem KH sigraði okkar menn örugglega 3-1.

KF ætlar að selja sig dýrara í þessum leik enda ekkert grín fyrir lið að koma til Fjallabyggðar að sækja stigin þrjú. KF er búið að vera á mjög góðu skriði í deildinni og hefur liðið sigrað síðustu fjóra leiki deildarinnar, og ekki fengið á sig mark í síðustu þremur leikjum. KF er í 4 sæti deildarinnar með 25 stig.
KH hefur hinsvegar misst dampinn heldur betur en liðið er búið að vera í öðru sæti deildarinnar nánast frá byrjun en liðið hefur verið að ströggla í síðustu leikjum og mistekist að ná sigri í síðustu 4 leikjum en eru þó aðeins með 1 stigi minna en KF í 5. sæti með 24 stig.

Staðan í deildinni er þannig að Dalvík/Reynir situr á toppi deildarinnar með 31 stig og

Screen Shot 2018-08-30 at 18.15.57.png

Staðan í deildinni fyrir leik KF og KH

16 leiki spilaða, KFG er í öðru sæti með 26 stig og 15 leiki spilaða. Vængir Júpíters í því þriðja með 26 stig og eins og Dalvík með 16 leiki spilaða. Síðan koma okkar menn KF með 25 stig og 15 leiki spilaða og í 5 sæti er KH með 24 stig og 15 leiki spilaða. Spennan er því gríðarleg fyrir síðustu 3 umferðir deildarinnar og eru öll lið í bullandi toppbaráttu og má ekkert lið við því að tapa stigum það sem eftir er.

Leikurinn á laugardaginn verður gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið, og verður það líkt og allir leikir KF miklir baráttu leikir og hvorugt liðið má misstíga sig í toppbaráttunni því tap útilokar nánast möguleika liðanna að komast upp um deild að ári.

Ljubomir Delic og Andri Snær Sævarsson koma tilbaka í hópinn eftir að hafa verið í banni gegn Ægir. Tveir aðrir leikmenn hjá KF fara í bann gegn KH og eru það Grétar Áki Bergsson og Halldór Logi Hilmarsson en báðir hafa þeir fengið 4 gul spjöld. Hópurinn hjá KF hefur þó ágætis breidd og kemur ávallt maður í manns stað.

Kfbolti.is náði tali á Halldóri Ingvar Guðmundssyni markmanni KF um komandi leik

Screen Shot 2018-08-30 at 18.17.27.png

Dóri markmaður

gegn KH og spurði hann um möguleika KF í þessum leik.
„Okkar möguleikar í þessum leik eru miklir enda kemur ekkert lið hingað á Ólafsfjarðarvöll og tekur 3 stig auðveldlega. KH er hinsvegar með öflugt lið og verður þetta spennandi leikur“
Stuðningurinn skiptir miklu máli og hefur mætingin á völlinn í sumar verið þó nokkuð góð en það má alltaf gera betur.
„Já klárlega, stuðningurinn er gríðarlega mikilvægur og ef fólk ætti einhverntímann að hafa ástæðu að styðja okkur og mæta á völlinn er það núna. Við ætlum okkur að leggja okkur alla fram til þess að knýja sigur og halda okkur lifandi í þessari toppbaráttu.“

Við hvetjum ALLA íbúa Fjallabyggðar og aðra stuðningsmenn KF að mæta á völlinn og gera sér glaðan dag og styðja okkar menn til sigurs.

ÁFRAM KF

Screen Shot 2018-08-29 at 21.43.02

 

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s