Vængir Júpíters – KF
Á morgun, Laugardaginn 9. júní klukkan 14:00 heimsækja strákarnir okkar lið Vængi júpíters í grafavoginum. Leikið verður á gervigrasinu á Fjölnisvelli.
KF tapaði síðasta leik illa gegn Sindra og ætla þeir svo sannarlega að koma sér á sigurbraut aftur. KF situr í 9 sæti deildarinnar með 3 stig. Vængir júpíters töpuðu gegn Einherja 2-0 og eru enn í leit að sínum fyrsta sigri. Að því sögðu má búast við hörkuleik.
KF og Vængir hafa mæst aðeins tvisvar áður og var það á síðasta tímabili. Vængir unnu sinn heimaleik 5-3 og KF vann sinn heimaleik 5-0.
Við biðjum alla stuðningsmenn KF á höfuðborgarsvæðinu að skella sér á völlinn og hvetja strákana til dáða!
Áfram KF